BV Sport · Saint-Étienne
Alvöru sokkar fyrir alvöru áskoranir
Tæknilegir hlaupa-, utanvega- og þrýstisokkar sem halda – frá fyrsta kílómetra til þess síðasta.
Veldu eftir notkun
Sami sokkurinn hentar ekki í maraþon og á Laugaveginn.
Sokkar sem halda


Æfingasokkar
SCR ONE 3
2,120 kr


Hjólasokkar
BIKE ELITE
2,990 kr


Hlaupasokkar
LIGHT RUN HIGH
3,550 kr


Hlaupasokkar
RUN MARATHON.2 MID
3,190 kr


Hlaupasokkar
RUN MARATHON.2 LOW
2,990 kr


Þrýstisokkar
TRAIL ULTRA COMPRESSION
7,990 kr


Þrýstisokkar
RUN MARATHON COMPRESSION
7,990 kr


Hlaupa- og utanvegasokkar
REFLECT
3,990 kr

Um framleiðandann
Af hverju BV Sport?
Hannaðir og framleiddir í Saint-Étienne í Frakklandi síðan 1998. Munurinn liggur í smáatriðunum sem finnast ekki í venjulegum íþróttasokkum.
-
01
3D-sóli
Prjónaður eftir fótlaginu – betri þægindi og stöðugleiki í skónum.
-
02
360° ökklastuðningur
Heldur við ökklann og stöðugar fótinn án þess að þrengja að.
-
03
Styrktir álagspunktar
Reimasvæði, hæll og tá – þar sem venjulegir sokkar gefa sig fyrst.
-
04
Sléttir saumar
Minni núningur og minni hætta á blöðrum á löngum vegalengdum.
-
05
Hægri og vinstri
Ósamhverft snið sem virðir lögun hvors fótar fyrir sig.
Þrýstitækni BV Sport
Markviss þrýstingur – ekki bara þröngir sokkar
Árið 1990 hófu tveir æðasérfræðingar að þróa nýja nálgun á þrýsting fyrir íþróttafólk. Í stað þess að þrengja mest að ökklanum beinir BV Sport þrýstingnum markvisst á kálfann – þar sem bláæðapumpan vinnur. Útkoman er betra blóðflæði, minni titringur í vöðvum og hraðari endurheimt.
Hefðbundnir þrýstisokkar
Mestur þrýstingur á ökkla
Þrýstingurinn er mestur við ökklann og minnkar jafnt upp eftir fætinum.
34%
bætt bláæðaflæði
Selective Compression – BV Sport
Markviss þrýstingur á kálfann
Þrýstingnum er beint þangað sem bláæðapumpan vinnur – í kálfanum – og stífleiki efnisins er breytilegur eftir svæðum.
79%
bætt bláæðaflæði

Heimild: rannsókn Mosti & Partsch (2011) á bláæðaflæði með þrýstingi á ökkla annars vegar og á kálfa hins vegar.
minni titringur í vöðvum við hvert skref
betri súrefnismettun í vöðvum
minni vöðvaverkir daginn eftir
Heimild: rannsóknir BV Sport.

Booster – hönnunin
Hvert svæði hefur sitt hlutverk
- 01Stíft net á kálfaStyður bláæðaflæði og heldur vöðvanum stöðugum.
- 02Stuðningsband um kálfannHeldur hlífinni á sínum stað og styður við vöðvann.
- 03TitringsvörnDregur úr sveiflum og titringi í vöðvum við hvert högg.
- 04Sveigjanleg sköflungshlífÞægindi að framan án þess að skerða hreyfingu.
- 05Stuðningur við hásinVerndar viðkvæmt svæði sem verður fyrir miklu álagi.
Stærðarleit
Hvaða stærð á ég að taka?
Sokkarnir koma í fjórum stærðarbilum. Sláðu inn skónúmerið þitt og fáðu réttu stærðina strax.
| Skónúmer (EU) | Sokkastærð |
|---|---|
| 36 – 38 | 36/38 |
| 39 – 41 | 39/41 |
| 42 – 44 | 42/44 |
| 45 – 47 | 45/47 |
Legghlífar, þrýstisokkar og Recovery-sokkar fara eftir kálfaummáli – stærðarleitin á vörusíðu hverrar vöru reiknar það út.
Skónúmerið þitt (EU)



